Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Krafa þjóðarinnar?

Posted on November 3, 2023 by Fullveldi

Fullyrðingar heyrast gjarnan úr röðum þeirra sem vilja skipta lýðveldisstjórnarskránni út fyrir aðra þess efnis að um háværa kröfu þjóðarinnar sé að ræða. Fátt ef eitthvað er þó til marks um það að svo sé í raun. Þvert á móti bendir flest til þess að mikill meirihluti þjóðarinnar hafi sáralítinn áhuga á málinu. Raunar svo lítinn að umræddir einstaklingar finna sig reglulega knúna til þess að minna þjóðina á meinta kröfu hennar.

Kosningar til stjórnlagaþings fóru þannig til að mynda fram í lok nóvember 2010 og var kjörsóknin aðeins 36,8%. Verkefni þingsins var ekki að semja nýja stjórnarskrá eins og stundum er fullyrt heldur einungis að „endurskoða og gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins“ eins og sagði í greinargerð með frumvarpi til laga um það. Sama átti við um stjórnlagaráð sem skipað var eftir að kosningarnar voru dæmdar ólögmætar.

Haustið 2012 fór fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs. Til stóð áður að halda hana samhliða forsetakosningunum um vorið í von um að auka líkurnar á því að fólk mætti á kjörstað en það reyndist ekki mögulegt. Kosningaþátttakan um haustið var aðeins 48,9%. Einungis um þriðjungur kjósenda á kjörskrá sagðist hlynntur því að tillögurnar yrðu „lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“.

Fámenn hátíðarhöld á Austurvelli

Fjórum sinnum hefur verið efnt til þingkosninga síðan ráðgefandi þjóðaratkvæðið fór fram. Framboð hlynnt því að skipta um stjórnarskrá fengu mest um þriðjung atkvæða samanlagt í kosningunum 2013 en harkalega var tekizt á um málið á Alþingi í aðdraganda þeirra. Hins vegar skiluðu kosningarnar þeim tveimur flokkum sem andvígir voru málinu, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum, meirihluta þingsæta.

Fylgi framboða hlynntum því að skipta um stjórnarskrá hefur síðan þá almennt farið minnkandi og var einungis um 22% samanlagt í þingkosningunum 2021 þrátt fyrir auglýsingaherferð Stjórnarskrárfélagsins í aðdraganda þeirra þar sem kjósendur voru hvattir til þess að styðja einungis slík framboð. Fylgi Samfylkingarinnar hefur hins vegar stóraukizt meðal annars í kjölfar þess að flokkurinn hætti að leggja áherzlu á málið.

Fyrir ári síðan boðaði Stjórnarskrárfélagið til hátíðarhalda á Austurvelli í tilefni þess að tíu ár voru þá liðin frá því að ráðgefandi þjóðaratkvæðið fór fram. Var atburðurinn vandlega auglýstur í fjölmiðlum og á Facebook-síðu félagsins vikurnar og mánuðina á undan. Skemmst er hins vegar frá því að segja að sárafáir létu sjá sig. Raunar svo fáir að ekkert var fjallað meira um hátíðarhöldin á Facebook-síðunni eftir að þau hófust.

Tvennt hægt að gera við tillögurnar

Fátt ef eitthvað bendir einfaldlega til þess að sérstakur áhugi sé á því hjá íslenzku þjóðinni að skipta stjórnarskrá lýðveldisins út fyrir aðra. Þvert á móti hefur það ítrekað sýnt sig þegar til kastanna hefur komið að þjóðin hefur haft vægast sagt mjög takmarkaðan áhuga á málinu. Þá ekki sízt í þingkosningum þar sem framboð hlynnt því að skipta um stjórnarskrá hafa fengið minna fylgi samanlagt en Sjálfstæðisflokkurinn einn.

Við þetta má bæta að ráðgefandi þjóðaratkvæðið frá 2012 hefur í reynd þegar verið uppfyllt enda voru tillögur stjórnlagaráðs „lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá“. Frumvarpið náði hins vegar ekki fram að ganga á Alþingi en tekið var skýrt fram bæði á kjörseðlinum og í kynningarefni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins að síðasta orðið í þeim efnum lægi hjá þinginu í samræmi við stjórnskipun landsins.

Tvennt er fyrir vikið hægt að gera við tillögur stjórnlagaráðs með tilliti til verkefnis ráðsins og þeirra forsendna sem lágu til grundvallar ráðgefandi þjóðaratkvæðinu. Annað hvort að líta á tillögurnar eins og þær voru alltaf hugsaðar, sem innlegg í þá vinnu að gera breytingar á stjórnarskránni þar sem þær eru taldar nýtast, eða að hafa þær einfaldlega að engu í ljósi þess að umrædd vinna var ekki í samræmi við umboð ráðsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 3. nóvember 2023)

(Ljósmynd: Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Tvennt hægt að gera við tillögurnar
Dönsk stjórnarskrá?
Að virða niðurstöður kosninga
„Þetta vill meirihluti þjóðarinnar!“
„Skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands“
Var aldrei falið að semja nýja stjórnarskrá

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb