Skip to content

Fullveldi.is

VEFSETUR UM UTANRÍKIS- OG VARNARMÁL

Menu
  • Forsíða
  • Greinar
    • EES-samningurinn
      • Bókun 35
    • Evrópumál
    • Fríverzlun
    • Schengen
    • Stjórnarskrármál
    • Varnarmál
  • Skýrslur
  • Hlaðvarp
  • Fullveldi.is
  • English
Menu

Hvar er torfkofinn?

Posted on October 17, 2024October 22, 2024 by Fullveldi

Heimurinn telur tæplega tvö hundruð ríki. Þar af um 160 sem ekki eiga aðild að EES-samningnum og eru fyrir vikið í torfkofunum. Allavega ef marka má málflutning forystumanna Viðreisnar. Hið sama á við um Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, og nú síðast Guðna Frey Öfjörð, fyrrverandi stjórnarmann í Ungum Pírötum, í grein á Vísir.is fyrr í vikunni. Þess í stað kjósa þessi ríki víðtæka fríverzlunarsamninga þegar þau semja um milliríkjaviðskipti. Þá væntanlega vegna einhvers konar sjálfseyðingarhvatar.

Hið prýðilegasta tilefni til þess að fjalla um EES-samninginn kom með grein Guðna og þeim ófáu haldlausu fullyrðingum sem þar komu fram. Til að mynda var fullyrt í greininni að vegna aðildarinnar að EES-samningnum hefði „velferð og efnahagur Íslands blómstrað“. Veruleikinn er hins vegar sá að við vitum ekki hver efnahagslegur ávinningur okkar er í raun af samningnum. Eina eiginlega rannsóknin sem hefur verið gerð í þeim efnum, af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og birt 2018, skilaði engum afgerandi niðurstöðum.

Fullyrðing Guðna um árlegan efnahagslegan ávinning af EES-samningnum upp á 52 milljarða króna má rekja til þýzkrar huglægrar rannsóknar sem taka ber með miklum fyrirvara að sögn þeirra sem unnu hana þar sem hún er miklum takmörkunum háð. Hæglega má hins vegar sýna fram á að kostnaðurinn við samninginn hlaupi á tugum milljarða króna. Til að mynda var fjallað um það fyrir ekki alls löngu að árlegur kostnaður einungis vegna nýs regluverks Evrópusambandsins um persónuvernd væri metinn á annan milljarð króna.

Dökk mynd af stöðu ESB

Fyrir vikið kemur ekki á óvart að engin haldbær rök hafi verið að finna í grein Guðna í þeim efnum. Til dæmis skírskotanir í hagtölur. Fullyrðingin um að EES-samningurinn hafi tryggt okkur aðgang að innri markaði Evrópusambandsins stenzt heldur ekki skoðun. Öll ríki heimsins hafa aðgang að honum nema þau sæti einhvers konar viðskiptaþvingunum. Hins vegar er aðgangurinn misgreiður en færa má rök fyrir því með vísun í gögn frá utanríkisráðuneytinu að fríverzlunarsamningur myndi tryggja hagstæðara aðgengi.

Með aðildinni að EES-samningnum höfum við bundið okkur á klafa hnignandi markaðar miðað við aðra helztu markaði heimsins eins og er til dæmis áréttað í tveimur skýrslum sem birtar hafa verið á árinu og unnar fyrir Evrópusambandið, annars vegar af Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra þess, og hins vegar Enrico Letta, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, þar sem dregin er upp virkilega dökk mynd af stöðu sambandsins og hvernig það hafi dregizt aftur úr öðrum mörkuðum. Ekki sízt vegna íþyngjandi regluverks.

Hvað varðar Marel og Össur sem Guðni gerði enn fremur að umtalsefni var þar átt við orð Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Marels, í Viðskiptablaðinu í apríl 2019 um að hann héldi að fyrirtækið hefði ekki orðið til í sömu mynd án EES-samningsins. Visaði Hörður þar einkum til tolla á innflutt hráefni og útfluttar iðnaðarvörur sem þegar höfðu verið felldir niður með fríverzlunarsamningi Íslands við Efnahagsbandalag Evrópu, forvera Evrópusambandsins, frá 1972 sem enn er í fullu gildi. Löngu fyrir gildistöku EES.

Engar matvöruverzlanir?

Fullyrt var í grein Guðna að án EES-samningsins væru svo gott sem engar matvöruverzlanir starfandi á Íslandi. Þar á meðal Hagkaup, Bónus og Nettó sem allar voru þó starfræktar fyrir daga samningsins. Sem fyrr voru engin rök færð fram. Hið sama sagði hann eiga við um Costco sem litlu munaði þvert á móti að kæmi ekki til landsins einmitt vegna EES-samningsins og regluverksins sem fylgir honum. Af sömu ástæðu hafa ýmsar heildverzlanir eins og Innnes dregið verulega til dæmis úr innflutningi á vörum frá Bandaríkjunum.

Með öðrum orðum hefur aðildin að EES-samningnum þvert á það sem Guðni heldur fram miklu fremur dregið úr vöruúrvali og hækkað vöruverð en hitt. Regluverk Evrópusambandsins ræður því hvaða vörur megi flytja til landsins eða kaupa í gegnum erlendar netverzlanir en mikið af því er hugsað sem tæknilegar viðskiptahindranir með það fyrir augum að vernda framleiðslu innan sambandsins gegn utanaðkomandi samkeppni enda í grunninn gamaldags tollabandalag sem er í eðli sínu andstæðan við frjáls milliríkjaviðskipti.

Með aðildinni að EES-samningnum er Ísland þannig utan tollamúra Evrópusambandsins en hins vegar innan regluverksmúra þess. Formlega hafa íslenzk stjórnvöld fullt frelsi til þess að semja um fríverzlun við önnur ríki en í raun markar samningurinn svigrúmið í þeim efnum. EES-samningurinn er með öðrum orðum í vaxandi mæli viðskiptahindrun gagnvart öðrum heimshlutum sem miklu fremur eru framtíðarmarkaðir. Til að mynda er EES-samningurinn að öllum líkindum hindrun í vegi fríverzlunarsamnings við Bandaríkin.

Hagsmunir lands og þjóðar

Hvað annars varðar til að mynda frjálst flæði fólks, Evrópska sjúkratryggingakortið, Erasmus og greiðari aðgang að erlendum háskólum sem Guðni nefnir EES-samningnum til bóta má semja um allt slíkt og fleira til í víðtækum fríverzlunarsamningum eins og dæmin sýna. Ef það er á annað borð áhugi fyrir því. Til að mynda reyndi Evrópusambandið að fá brezk stjórnvöld til þess að samþykkja frjálst flæði fólks með fríverzlunarsamningnum á milli Bretlands og sambandsins en brezkir ráðamenn einfaldlega afþökkuðu það.

Með öðrum orðum má ljóst vera að ef eitthvað er á leiðinni í torfkofana í þessum efnum er það Evrópusambandið og innri markaður þess með Ísland í farteskinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum sem verið hefur að dragast efnahagslega jafnt og þétt aftur úr öðrum heimshlutum á undanförnum árum og áratugum samkvæmt skýrslum sem unnar hafa verið fyrir sambandið sjálft. Hér erum við hins vegar ekki byrjuð að ræða það vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum sem þróun EES-samningsins gerir kröfu um.

Markmiðið hlýtur í öllu falli ávallt að vera hagsmunir Íslands og íslenzku þjóðarinnar en ekki einstakir samningar sem eru aðeins verkfæri í þeim efnum. Sé mögulegt að tryggja þá betur með víðtækum fríverzlunarsamningi, fyrirkomulagi sem ríki heimsins kjósa allajafna að notast við þegar þau semja um viðskipti, hlýtur að vera eðlilegt að taka það til alvarlegrar skoðunar. Nema markmiðið sé annað. Það er að segja EES-samningurinn sem slíkur óháð því hvort hann sé bezt til þess fallinn að tryggja hagsmuni lands og þjóðar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður á Vísir.is 17. október 2024)

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)


Tengt efni:
Varði ekki viðsnúninginn
Fullkomlega óskiljanlegt
Stenzt ekki stjórnarskrána
Stærra mál en Icesave og þriðji orkupakkinn
Hljómar kunnuglega ekki satt?

HELZTU GREINAR


Mýtan um sætið við borðið

Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið tæki vægi landsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda þess. Til að mynda þegar teknar væru ákvarðanir varðandi sjávarútvegs- og orkumál sem skipta okkur Íslendinga miklu máli. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins sem gjarnan er skilgreint sem valdamesta stofnun þess. Vægi Íslands þar yrði þannig í langflestum tilfellum aðeins um 0,08% eða á við 5% hlut í alþingismanni.



Verður það sama gert aftur?

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í kappræðum formanna stjórnmálafokkanna á Stöð 2 á dögunum, aðspurður af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, hvort til þess gæti komið að hann gæfi eitthvað eftir varðandi inngöngu í Evrópusambandið kæmi til ríkisstjórnarsamstarfs flokks hans við Viðreisn og Samfylkinguna eftir þingkosningarnar, að hann gæti ekki og myndi ekki taka þátt í ríkisstjórn sem berðist fyrir því að Ísland gengi í sambandið. Hann sæi engin rök fyrir inngöngu í það.



Vilja miklu stærra bákn

Mjög sérstakt er að sjá forystumenn Viðreisnar og aðra frambjóðendur flokksins gagnrýna umfang íslenzku stjórnsýslunnar og segjast vilja minnka báknið á sama tíma og helzta stefnumál flokksins, sem öll önnur stefnumál hans taka í raun mið af, er að Ísland gangi í Evrópusambandið sem telur stjórnsýsluna hér á landi þvert á móti allt of litla til þess að standa undir þeim skuldbindingum sem fylgja inngöngu í sambandið.



Fámennt ríki á jaðrinum

Versta staða sem ríki getur verið í innan Evrópusambandsins, þegar kemur að möguleikum á því að hafa áhrif á ákvarðanatökur innan þess, er að vera fámennt ríki á jaðri sambandsins. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrði landið bæði það fámennasta innan sambandsins og á yzta jaðri þess.



Hegðaði sér eins og einræðisherra

„Ég vissi að ég gæti aldrei unnið þjóðaratkvæði hér í Þýzkalandi. Við hefðum tapað sérhverri atkvæðagreiðslu um evruna. Það er alveg ljóst,“ sagði Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, í samtali við þýzka blaðamanninn Jens Peter Paul árið 2002. Viðtalið er að finna í doktorsritgerð Pauls sem gerð var opinber um áratug síðar en Kohl gegndi kanzlaraembættinu þegar grunnur var lagður að Evrópusambandinu eins og við þekkjum það í dag og evrusvæðinu með Maastricht-sáttmálanum á tíunda áratug síðustu aldar.



Mjög skiljanleg umræða um EES

Vaxandi umræða um það hvort rétt sé fyrir okkur Íslendinga að vera áfram aðilar að EES-samningnum er afar skiljanleg þó Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, telji hana óskiljanlega samanber pistill hennar í Morgunblaðinu á dögunum þar sem hún hélt því enn fremur meðal annars fram að án samningsins færum við aftur í torfkofana. Eða eins og hún kaus að orða það: „Eins og það sé einhver glóra í því fyrir þjóð sem á allt sitt undir viðskiptum við önnur lönd að forða sér aftur inn í torfkofana.“



Varði ekki viðsnúninginn

Fróðlegur fundur var haldinn í húsakynnum okkar sjálfstæðismanna í Kópavogi á laugardaginn þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, flutti erindi og sat síðan fyrir svörum. Meðal þeirra mála sem voru helzt til umræðu var frumvarp Þórdísar um bókun 35 við EES-samninginn sem mun þýða, nái það fram að ganga, að fest verði í lög að regluverk frá Evrópusambandinu sem innleitt hefur verið í gegnum samninginn gangi framar innlendri lagasetningu.



Við erum á allt öðrum stað

Verðbólga á evrusvæðinu náði hámarki í október 2022 miðað við samræmda vísitölu neyzluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu og mældist þá 10,6%. Á sama tíma var verðbólga á Íslandi á sama mælikvarða 6,4%. Eftir það fór verðbólga á evrusvæðinu minnkandi en byrjaði ekki að minnka hér á landi fyrr en í febrúar 2023. Ástæðan er sú að verðbólgan hér hefur verið nokkrum mánuðum á eftir stöðu mála innan svæðisins. Verðbólgan fór með öðrum orðum fyrr upp á evrusvæðinu en hér á landi og fyrir vikið er hún seinni niður hér.



Treystandi fyrir stjórn landsins?

Formanni Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hefur orðið nokkuð tíðrætt á kjörtímabilinu um að það þurfi „einfaldlega að fara að stjórna þessu landi“ eins og hún til að mynda orðaði það í grein á Vísir.is fyrr á árinu. Þar beindi formaðurinn spjótum sínum að ríkisstjórninni sem sannarlega er hægt að gagnrýna fyrir ýmislegt. Hins vegar er vandséð að Þorgerði og flokki hennar væri betur treystandi fyrir stjórn landsins.

  • Með vægi í samræmi við það
  • Tölum endilega um staðreyndir
  • Skjól fyrir spillta stjórnmálamenn
  • Vilja Ísland í evrópskt sambandsríki
  • „Þetta er algerlega galið“
©2025 Fullveldi.is | Built using WordPress and Responsive Blogily theme by Superb